Í bréfi sem utanríkisráðuneytið sendi á alla breska þingmenn á dögunum með það að markmiði að útskýra stöðu íslenskra stjórnvalda gagnvart Icesave-málinu svokallaða kemur m.a. fram að ljóst sé að regluverk Evrópusambandins um fjármálastarfsemi, sem innleitt var á Íslandi í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES), hafi gert vonda stöðu Íslendinga verri.
Bréf þetta var sent að beiðni utanríkisráðherra, Össurar Skarphéðinssonar, en orðrétt segir í því: "Ljóst er að það, hversu flókið núgildandi regluverk [Evrópusambandsins um fjármálastarfsemi] er, hefur magnað upp erfiðleika Íslands." (Clearly, the complexity of the current regulatory framework exacerbated the Icelandic situation.)
Rifja má upp að í febrúar sl. sagði Össur í viðtali við breska sjónvarpsmanninn David Frost að Evrópusambandið væri gölluð stofnun. Þau ummæli voru einmitt að sama skapi sett fram í umræðum um Icesave-reikningana og stöðu efnahagsmála á Íslandi.
Og undir yfirráð þessa gallaða Evrópusambands sem magnaði upp erfiðleika Íslendinga vill utanríkisráðherra koma þjóðinni.
Heimildir:
Össur kennir ESB um (Sonurhafsins.blog.is 13/05/09)
Bréf utanríkisráðuneytisins til breskra þingmanna (Utanrikisraduneyti.is 12/05/09)














