Hætta getur verið á því að evran veikist mikið og jafnvel að hún hrynji. Þetta er haft eftir John Hydeskov, gengis- gjaldeyrissérfræðingi hjá Danske Bank, á fréttavef danska viðskiptablaðsins Børsen í dag. Stöðu evrunnar sé m.a. ógnað vegna efnahagshruns í Austur- og Mið-Evrópu, mikillar birgðasöfnunar og erfiðleika evruríkja við að uppfylla þau skilyrði sem sett voru um myntsamstarfið. Þá bendir Hydeskov á að evran sé ofmetnust allra stærri gjaldmiðla í heiminum.
Heimildir:
Hugsanlegt hrun evrunnar (Mbl.is 12/05/09)
Hrunið í austri ógnar evrunni (Amx.is 12/05/09)














