Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir Nýtt Úrslit kosninganna enginn sigur fyrir Evrópusambandssinna

Úrslit kosninganna enginn sigur fyrir Evrópusambandssinna

Ljóst er að niðurstöður kosninganna sem fram fóru í gær eru enginn sigur fyrir málstað Evrópusambandssinna eins og sumir hafa viljað meina og þ.m.t. ýmsir fjölmiðlamenn. Eini flokkurinn sem gerði út á inngöngu í Evrópusambandið og helgaði henni að auki nánast alla sína kosningabaráttu, Samfylkingin, fékk aðeins 29,8% fylgi sem er minna en flokkurinn fékk í kosningunum 2003. Það er ennfremur minna en Samfylkingin fékk í kosningunum fyrir tveimur árum ef tekið er inn í myndina fylgi við Íslandshreyfingarinnar þá, en hún varð sem kunnugt er hluti af Samfylkingunni fyrr á þessu ári.

Stærsti sigurvegari kosninganna er tvímælalaust Vinstrihreyfingin - grænt framboð eins og búast mátti við. Sá flokkur er eins og þekkt er andvígur inngöngu í Evrópusambandið. Sjálfstæðisflokkurinn, sem einnig hafnar inngöngu, tapaði hins vegar miklu fylgi en ljóst er að ástæður þess eru síst stefna flokksins í Evrópumálum. Það er því ljóst að mikinn vilja og ímyndunarafl þarf til þess að túlka úrslit kosninganna sem sigur fyrir þá sem vilja Ísland inn í Evrópusambandið sem allra fyrst. Miklu nær væri að túlka þau sem sigur andstæðinga inngöngu í sambandið ef eitthvað.


Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! TwitThis Joomla Free PHP
 


Tengt efni:



Kynning

Borði
Borði

Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Evrópusambandið er ekki fríverslunarsvæði eins og t.a.m. Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) sem Ísland er aðili að. Evrópusambandið er m.a. tollabandalag sem er allt annars eðlis (þess utan vantar lítið upp á að sambandið verði að einu ríki). Tollabandalög leyfa vissulega frjálsa verslun innan sinna vébanda en viðhafa síðan háa tollmúra gagnvart viðskiptum við ríki utan þeirra. Innan fríverslunarsvæða er frjáls verslun og aðildarríki þeirra eru ekki svipt rétti sínum til þess að gera sjálfstæða viðskiptasamninga við ríki utan þeirra.