Jónas Kristjánsson, fyrrum ritstjóri, hefur gefist upp á að tala fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Hann hefur verið verið einhver ötulasti talsmaður inngöngu á undanförnum árum og talað fyrir því í 15 ár að eigin sögn. Í færslu á bloggi sínu í gær sagði hann m.a. að Evrópusambandið væri ekki vara sem seldist og að það væri fjarlægara venjulegu fólki en nokkurn tímann áður. Orðrétt sagði Jónas:
„Ekki skána óvinsældir Evrópu. Fólk vill ekki einu sinni viðræður um aðild, hvað þá aðild. Evrópa er ekki vara sem selst. Ég hef lengi verið fylgjandi aðild, aðallega af því að skárra er að vera innanborðs en úti í kuldanum. Þegar ég byrjaði að mæla með aðild fyrir fimmtán árum, vonaði ég, að Evrópa mundi fljótlega skána. Áhrif kjósenda mundu aukast og Evrópusambandið mundi færast nær almenningi. Sú hefur ekki orðið raunin. Evrópa er fjarlægari fólki en nokkru sinni fyrr. Skriffinnum hennar hefur gersamlega mistekizt að pakka sambandinu inn í seljanlegar umbúðir. Þeir fá núll í almannatengslum.“
Heimild:
Fá núll í almannatengslum (Jonas.is 12/04/09)














