Fram kom í máli Marios Katsioloudes, deildarforseta við Hellenic American University, á málfundi um kosti og galla Inngöngu í Evrópusambandið sem haldinn var á vegum tvíhliða viðskiptaráða Íslands og Þýskalands, Bretlands, Svíþjóðar, Spánar og fleiri ríkja á Grand Hóteli fyrir helgi, að þótt lítil eyþjóð hefði veika rödd innan „fjölskyldu" eins og sambandsins, þá væri það engu að síður betra en að hafa veika rödd utan hennar. Katsioloudes ræddi þarna um reynslu Kýpurbúa af fimm ára veru sinni í Evrópusambandinu.
Það er fyrir það fyrsta ágætt að fá staðfestingu á þeirri staðreynd að rödd lítilla eyþjóða sé veik innan Evrópusambandsins sem er vitanlega eitthvað sem vitað var fyrirfram. Það er líka athyglisvert að Katsioloudes skuli ekki segja að rödd ríkja sé veikari utan sambandsins heldur leggja þetta að jöfnu að því leytinu til. Ekki er síður athyglisvert að hann virðist ekki hafa gert neina tilraun til þess að rökstyðja þetta álit sitt. Staðreyndin er sú að innan Evrópusambandsins yrði Ísland bundið í áhrifaleysi á klafa sambandsins en utan þess eru í raun allir vegir færir.
Heimild:
Veik rödd innan fjölskyldu betri en utan (Fréttablaðið 06/04/09)














