Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir ESB umsókn Íslands Hefur Ísland tekið yfir meirihluta löggjafar ESB?

Hefur Ísland tekið yfir meirihluta löggjafar ESB?

Hjörtur J. Guðmundsson, stjórnarmaður í Heimssýn, ritaði grein á fréttavefinn Amx.is 8. september sl. þar sem hann segir að Ísland hafi alls ekki tekið yfir meirihluta lagasetningar Evrópusambandsins í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið (EES) eins og t.a.m. kommissar stækkunarmála sambandsins, Olli Rehn, hefur haldið fram í samtölum við erlenda fjölmiðla. Hjörtur bendir á að slíkar fullyrðingar gangi einfaldlega ekki upp sé málið skoðað nánar. Þannig hlaupi heildar löggjöf Evrópusambandsins á tugum þúsunda lagagerða á sama tíma og heildar löggjöf Íslands, lög og reglugerðir, eru aðeins um 5.000 talsins.

Orðrétt segir í grein Hjartar: 

"Heildar lagasetning Evrópusambandsins er talin vera í kringum 30 þúsund gerðir. Heildarfjöldi íslenzkra lagagerða er hins vegar aðeins í kringum 5 þúsund. Þar af eru um eitt þúsund lög en afgangurinn er reglugerðir. Þetta þýðir einfaldlega að jafnvel þó öll íslenzk löggjöf kæmi frá sambandinu væri hún minna en 20% af heildar lagasetningu þess. Hvernig er þá hægt að komast að þeirri niðurstöðu að Ísland hafi þegar tekið upp a.m.k. 2/3 hluta lagasetningar Evrópusambandsins?"

Heimild:
Hefur Ísland tekið upp meirihluta lagasetningar ESB? (Amx.is 08/09/09)

 


Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! TwitThis Joomla Free PHP
 


Tengt efni:



Kynning

Borði
Borði

Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Evrópusambandið er ekki fríverslunarsvæði eins og t.a.m. Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) sem Ísland er aðili að. Evrópusambandið er m.a. tollabandalag sem er allt annars eðlis (þess utan vantar lítið upp á að sambandið verði að einu ríki). Tollabandalög leyfa vissulega frjálsa verslun innan sinna vébanda en viðhafa síðan háa tollmúra gagnvart viðskiptum við ríki utan þeirra. Innan fríverslunarsvæða er frjáls verslun og aðildarríki þeirra eru ekki svipt rétti sínum til þess að gera sjálfstæða viðskiptasamninga við ríki utan þeirra.