Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir Starfsemi Heimssýnar Heimssýn á Vestfjörðum stofnað

Heimssýn á Vestfjörðum stofnað

Stofnfundur Heimssýnar á Vestfjörðum var haldinn á Hótel Ísafirði 26. september sl. þar sem rætt var um Ísland og Evrópusambandið. Illugi Gunnarsson, alþingismaður, hélt framsögu rakti sýn sína á aðildarumsókn ríkisstjórnarinnar að sambandinu og var ennfremur farið yfir aðdraganda umsóknarinnar. Fjörugar umræður sköpuðust og fjöldi fundarmanna tók til máls eftir framsögu Illuga. Fundarstjóri var Birna Lárusdóttir, bæjarfulltrúi á Ísafirði.

Eftirtaldir voru kjörnir í fyrstu stjórn Heimssýnar á Vestfjörðum: Ragna Magnúsdóttir, Bolungarvík, Lýður Árnason, Bolungarvík, Björn Birkisson, Botni Súgandafirði og varamenn: Hildur Halldórsdóttir, Ísafirði, Svava Rán Valgeirsdóttir, Suðureyri, Gísli Jón Kristjánsson, Ísafirði. 

Eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða á stofnfundinum og send fjölmiðlum:

"Heimssýn á Vestfjörðum, félag sjálfstæðissinna í Evrópumálum, skorar á Alþingi Íslendinga að láta nú þegar vinna að þýðingu á spurningalista Evrópusambandsins vegna aðildarumsóknar að ESB. Það er óforsvaranlegt að gera ekki öllum landsmönnum kleift að kynna sér á íslensku svo áhrifamikil málsatriði sem í spurningalistanum felast og snerta atvinnulíf og byggðamál um land allt. Tryggja verður að allir landsmenn hafi sömu möguleika til að afla sér upplýsinga og taka þátt í umræðu um þessi mál, óháð tungumálakunnátttu."

Heimssýn hefur á undanförnum mánuðum stofnað svæðisfélög víða á landinu.

 


Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! TwitThis Joomla Free PHP
 


Tengt efni:



Kynning

Borði
Borði

Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Áhrif Íslands innan Evrópusambandsins, yrði af íslenskri aðild, yrðu svo gott sem engin. Sú meginregla gildir innan sambandsins að vægi einstakra aðildarríkja, og þar með allir möguleikar þeirra til þess að hafa áhrif innan þess, fer fyrst og fremst eftir því hversu fjölmenn þau eru. Ljóst er að þetta fyrirkomulag myndi seint henta hagsmunum Íslendinga enda flest aðildarríki Evrópusambandsins milljónaþjóðir og í sumum tilfellum tugmilljónaþjóðir á sama tíma og Íslendingar eru aðeins rúmlega 300 þúsund.