Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir Nýtt Fundaröð Heimssýnar: Húsavík – Blönduósi - Suðurnesjum

Fundaröð Heimssýnar: Húsavík – Blönduósi - Suðurnesjum

Normal 0 0 1 129 737 6 1 905 11.1282 0 0 0

Heimssýn - hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum heldur fundi á þremur stöðum á landinu á næstunni. Sjaldan hefur umræðan um Evrópusambandið, aðildarumsókn Íslands og sjálfstæði landsins verið brýnni en einmitt nú. Fundirnir verða sem hér segir:

Húsavík, laugardaginn 7. nóvember 2009 kl. 11 f.h. í sal stéttarfélaganna. Ávörp flytja: Ásta Svavarsdóttir kennari og Kristján Þór Júlíusson alþingismaður. Fundarstjóri Kristín Linda Jónsdóttir í Miðhvammi.

 

Blönduósi, mánudagskvöldið 9. nóvember 2009 kl. 20:30 á ,,Pottinum og pönnunni“. Ávörp flytja: Jóhannes Torfason bóndi á Torfalæk, og alþingismennirnir Ásmundur Einar Daðason og Gunnar Bragi Sveinsson. Fundarstjóri Jóhanna Pálmadóttir á Akri.

 

Reykjanesbæ, þriðjudagskvöldið 10. nóvember 2009 kl. 20:00 á Hótel Keflavík. Ávörp flytja alþingismennirnir Eygló Harðardóttir, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Atli Gíslason.

 

Allir velkomnir!

 

Normal 0 0 1 54 308 2 1 378 11.1282 0 0 0

Viltu fylgjast með umræðunni á Heimssýnarblogginu? Skoðaðu www.heimssyn.blog.is

NÝTT: Umræðusíða Heimssýnar á Facebook: www.facebook.com/heimssyn

 


Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! TwitThis Joomla Free PHP
 


Tengt efni:



Kynning

Borði
Borði

Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Hlutlausar rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi hafa bent til þess að hugsanlegt sé að verðlag á matvörum gæti lækkað um 10-15% við inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru sem getur vart talist mikil lækkun. Ástæðan er m.a. sú að nú þegar eru flestar innfluttar vörur frá ríkjum sambandsins án tolla vegna EES-samningsins sem Ísland er aðili að. Hvort innganga í Evrópusambandið hins vegar raunverulega skilaði einhverju í þessum efnum kæmi aðeins í ljós eftir að inn í sambandið væri komið enda ljóst að ekkert yrði minnst á verðlagsmál í hugsanlegum samningi um inngöngu Íslands í það. Þess má annars geta að víðast hvar í þeim ríkjum Evrópusambandsins sem tekið hafa upp evru sem gjaldmiðil hefur verðlag hækkað en ekki lækkað. Í samræmi við það er evran t.a.m. uppnefnd "teuro" í Þýskalandi og Austurríki en þýska orðið "teuer" þýðir eitthvað sem er dýrt. Að lokum má geta þess að landbúnaðarvörur eru bara 5% af útgjöldum heimila og jafnvel 20% lækkun myndi því aðeins skila 1% lækkun útgjalda.