Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður, var á aðalfundi félagsins kosinn formaður. Ragnar Arnalds ákvað að sækjast ekki eftir formannsembætti Heimssýnar eftir 7 ára setu, eða frá stofnun félagsins. Nýr varaformaður er Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögfræðingur. Á fundinum var jafnframt ný stjórn kosin og ný lög sett.














