Stofnfundur Heimssýnar á Suðurnesjum var haldinn á Hótel Keflavík, þriðjudaginn 10. nóvember. Framsögur fluttu Atli Gíslason og Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmenn Suðurkjördæmis. Fundarstjóri var Páll Vilhjálmsson. Um 20-30 manns sóttu fundinn og voru umræður líflegar að loknum framsöguræðum.
Á stofnfundinum var stjórn kjörin. Í fyrstu stjórn félagsins á Suðurnesjum sitja eftirtaldir:
- Ingólfur Ólafsson
- Björk Guðjónsdóttir
- Reynir Sigurðsson
Varastjórn:
- Guðrún Þorsteinsdóttir
- Agnar Sigurbjörnsson














