Fullveldishátíð Heimssýnar verður haldin í Salnum í Kópavogi næstkomandi þriðjudag 1. desember frá kl. 17-19. Hátíðin var haldin í fyrsta sinn í fyrra og tókst sérlega vel. Ræðumenn að þessu sinni verða alþingismennirnir Ragnheiður Elín Árnadóttir og Ásmundur Einar Daðason, formaður Heimssýnar ásamt Guðna Ágússyni fyrrverandi landbúnaðarráðherra og formanni Framsóknarflokksins.
Á hátíðinni verður frumflutt verk eftir Atla Heimi Sveinsson tónskáld sem byggt er á Gunnarshólma. Það er Fífilbrekkuhópurinn sem sér um tónlistarflutning.
1. desember í ár er ekki aðeins dagurinn þegar fullveldi Íslands er fagnað heldur er það einnig dagurinn þegar Lissabon-sáttmálinn, sem í raun er ný stjórnarskrá Evrópusambandsins, tekur gildi með nýjum stöðum forseta og utanríkisráðherra, sem ekki voru valin í lýðræðislegum kosningum.












