Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir Nýtt Afgerandi ESB-ályktun Vg

Afgerandi ESB-ályktun Vg

Flokksráð Vinstri grænna tók afgerandi afstöðu gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu á flokksráðsfundi á Akureyri um miðjan janúar.

Eftirfarandi segir í ályktun Vg um Evrópumál

,,Flokksráðið ítrekar andstöðu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs við hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þrátt fyrir að nú hafi verið sótt um aðild að sambandinu, er það eindreginn vilji flokksráðs að Ísland haldi áfram að vera sjálfstætt ríki utan Evrópusambandsins.

Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs hvetur ráðherra, þingmenn og félagsmenn Vinstri grænna um allt land til að halda stefnu flokksins um andstöðu við aðild Íslands að ESB á lofti og berjast einarðlega fyrir henni. 

Í ljósi afstöðu flokksins telur flokksráðið brýnt að til verði fastur farvegur skoðanaskipta um Evrópumál á vettvangi flokksins og hvetur til ítarlegrar umfjöllunar um þau, m.a. með málþingum og málefnastarfi.  Flokksráðið felur stjórn flokksins að skipa sérstakan starfshóp til að fylgjast grannt með því ferli sem nú er í gangi og tryggja upplýsingaöflun innan flokksins og til að starfa með þingflokki og fulltrúum flokksins í utanríkismálanefnd að Evrópumálum.  Flokksráðið leggur sérstaka áherslu á gegnsæi í umsóknarferlinu og hvetur til opinna umræðu- og fræðslufunda um ESB þar sem öll sjónarmið, kostir og gallar, eru dregin fram."

 


Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! TwitThis Joomla Free PHP
 


Tengt efni:



Kynning

Borði
Borði

Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Enginn getur fullyrt um það hvernig Evrópusambandið muni þróast til framtíðar. Hins vegar er hægt að gera ráð fyrir líklegri framtíðarþróun sambandsins ef litið er til þess hvernig það hefur þróast til þessa. Ef eitthvað hefur einkennt þróun Evrópusambandsins til þessa er það sífellt meiri samruni og miðstýring á öllum sviðum. Fátt bendir til annars en að þessi þróun muni halda áfram. Í dag vantar lítið upp á að sambandið verði að einu ríki.