Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir ESB umsókn Íslands Þjóðverjar vilja Ísland í ESB vegna auðlindanna

Þjóðverjar vilja Ísland í ESB vegna auðlindanna

Einn helsti sérfræðingur Þjóðverja í málefnum Norðurlanda, Carsten Schymik, segir litlar líkur á að Ísland gangi í Evrópusambandið. Ástæðan sé sú að ekki sé eining á meðal íslenskra stjórnmálamanna um inngöngu í sambandið og andstöðu almennings við slíkt skref. Hann segir að Evrópusambandið vilji gjarnan að ríki sem gangi í sambandið sýni vilja til þess að aðlagast því til lengri og skemmri tíma. Efasemdir hafi því vaknað um "getu" Íslands til þess að laga sig að Evrópusambandinu.

Schymik segir það þjóna hagsmunum Þjóðverja að Ísland gangi í Evrópusambandið. Þar skipti náttúruauðlindir Íslendinga mestu máli. "Fyrir utan fiskinn eru það endurnýjanlegar orkuauðlindir. Einnig ræðst það af mikilvægri legu landsins í N-Atlantshafi, sem eins konar gátt til Norðurskautsins."

Heimild:
Litlar líkur á aðild Íslands að ESB (Rúv.is 10/06/10)

 


Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! TwitThis Joomla Free PHP
 


Tengt efni:



Kynning

Borði
Borði

Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, eru þverpólitísk samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.