Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir ESB umsókn Íslands Drögum ESB-umsóknina til baka

Drögum ESB-umsóknina til baka

Framkvæmdastjórn Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fagnar tillögu að þingsályktun sem  um að Ísland dragi tilbaka umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Engar haldbærar forsendur eru fyrir umsókninni, hvorki á Alþingi né meðal þjóðarinnar. Aðeins einn stjórnmálaflokkur, Samfylkingin, er með aðild að ESB á stefnuskrá sinni. Flokkar með samtals 70 prósent kjörfylgi hafa lýst andstöðu sinni við inngöngu í ESB. Skoðanakannanir sýna margítrekað að milli 60-70 prósent þjóðarinnar er andvíg inngöngu. Í gær birtist skoðanakönnun þar sem kemur fram að 70 prósent þeirra sem afstöðu tóku vilja draga umsóknina tilbaka.

Verði  umsókninni haldið til streitu eru vaxandi líkur á að samskipti Íslands og ESB bíði skaða af. Í Evrópu er spurt hvers vegna ríkisstjórn Íslands fer ekki eftir lýðræðislegum vilja þjóðarinnar. Hvorki Íslandi né Evrópusambandinu er greiði gerður með því að taka fé og fyrirhöfn í starf sem engar líkur eru á að leiði til aðildar Íslands.

 


Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! TwitThis Joomla Free PHP
 


Tengt efni:



Kynning

Borði
Borði

Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Hlutlausar rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi hafa bent til þess að hugsanlegt sé að verðlag á matvörum gæti lækkað um 10-15% við inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru sem getur vart talist mikil lækkun. Ástæðan er m.a. sú að nú þegar eru flestar innfluttar vörur frá ríkjum sambandsins án tolla vegna EES-samningsins sem Ísland er aðili að. Hvort innganga í Evrópusambandið hins vegar raunverulega skilaði einhverju í þessum efnum kæmi aðeins í ljós eftir að inn í sambandið væri komið enda ljóst að ekkert yrði minnst á verðlagsmál í hugsanlegum samningi um inngöngu Íslands í það. Þess má annars geta að víðast hvar í þeim ríkjum Evrópusambandsins sem tekið hafa upp evru sem gjaldmiðil hefur verðlag hækkað en ekki lækkað. Í samræmi við það er evran t.a.m. uppnefnd "teuro" í Þýskalandi og Austurríki en þýska orðið "teuer" þýðir eitthvað sem er dýrt. Að lokum má geta þess að landbúnaðarvörur eru bara 5% af útgjöldum heimila og jafnvel 20% lækkun myndi því aðeins skila 1% lækkun útgjalda.