Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Forsíða Fréttir ESB umsókn Íslands Sjálfstæðisflokkurinn krefst þess að ESB-umsóknin verði dregin til baka

Sjálfstæðisflokkurinn krefst þess að ESB-umsóknin verði dregin til baka

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í dag stjórnmálaályktun þar sem m.a. kemur fram að flokkurinn krefjist þess að umsóknin um inngöngu Íslands í Evrópusambandið verði dregin til baka án tafar. Flutningsmaður tillögunnar var Hallgrímur Viðar Arnarsson og var hún samþykkt með afgerandi hætti. Fyrri tillögum sem ætlað var að friða minnihluta Evrópusambandssinna á landsfundinum var hins vegar hafnað.

Í stjórnmálaályktuninni segir um Evrópumál: "Sjálfstæðisflokkurinn setur fram þá skýru kröfu að umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði dregin til baka án tafar." Síðar í ályktuninni segir að flokkurinn hafni vegverð ríkisstjórnarinnar inn í sambandið.

Myndband þar sem Hallgrímur flytur tillöguna má nálgast hér.

Stjórnmálaályktunina í endanlegri útgáfu má nálgast hér

 


Reddit! Del.icio.us! Mixx! Free and Open Source Software News Google! Live! Facebook! StumbleUpon! TwitThis Joomla Free PHP
 


Tengt efni:



Kynning

Borði
Borði

Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Enginn getur fullyrt um það hvernig Evrópusambandið muni þróast til framtíðar. Hins vegar er hægt að gera ráð fyrir líklegri framtíðarþróun sambandsins ef litið er til þess hvernig það hefur þróast til þessa. Ef eitthvað hefur einkennt þróun Evrópusambandsins til þessa er það sífellt meiri samruni og miðstýring á öllum sviðum. Fátt bendir til annars en að þessi þróun muni halda áfram. Í dag vantar lítið upp á að sambandið verði að einu ríki.