Heimssýn

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Heimssýn Vesturland

Heimssýn Vesturland

Heimssýn Vesturland, aðildarfélag Heimssýnar á Vesturlandi, var stofnað á opnum fundi um Evrópumál á vegum samtakanna sem fram fór á Bifröst 14. júní 2009.

Meðal frummælenda þar voru Gunnar Á Gunnarsson á Hýrumel, Eiríkur Bergmann á Bifröst og alþingismennirnir Vigdís Hauksdóttir, Ásmundur E. Daðason og Einar Kr. Guðfinnsson. Fundarstjóri var Sturla Böðvarsson fv. forseti Alþingis.

Í lok fundar var tekin mynd af bráðabirgðastjórn aðildarfélagsins en hana skipa f.v. talið Óðinn Sigþórsson Einarsnesi, Þórólfur Sveinsson Ferjubakka, Magnús Þór Hafsteinsson Akranesi, Ingibjörg Konráðsdóttir Hýrumel en fimmti maður í stjórn er Guðbrandur Brynjúlfsson á Brúarlandi sem vantar á myndina.

 

 

 

 



Áskrift að fréttabréfi

Heimssýn á Facebook

Vissir þú

Enginn getur fullyrt um það hvernig Evrópusambandið muni þróast til framtíðar. Hins vegar er hægt að gera ráð fyrir líklegri framtíðarþróun sambandsins ef litið er til þess hvernig það hefur þróast til þessa. Ef eitthvað hefur einkennt þróun Evrópusambandsins til þessa er það sífellt meiri samruni og miðstýring á öllum sviðum. Fátt bendir til annars en að þessi þróun muni halda áfram. Í dag vantar lítið upp á að sambandið verði að einu ríki.