Evrópusambandið hefur hótað Íslendingum og Færeyingum að sambandið muni íhuga allar leiðir til þess að koma í veg fyrir að þjóðirnar tvær haldi áfram að veiða makríl í eigin lögsögum. ESB telur sig eiga makrílinn og viðurkennir ekki að hann finnist í íslenskri eða færeyskri lögsögu en þangað hefur hann leitað í miklum mæli að undanförnu vegna að hafið hefur hlýnað á þeim slóðum.



Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gerð var á vegum Evrópusambandsins telja 54% Spánverja að þeir hefðu verið betur í stakk búnir að sigrast á þeim alvarlegu efnahagserfiðleikum sem geysa á Spáni með gamla sjálfstæða gjaldmiðilinn sinn, pesetann, að vopni en evruna. Talsmaður sambandsins sagði af því tilefni að þetta sýndi það eitt að spænskur almenningur hefði "ekki skilið kosti evrunnar."